Hér eru birtar tilkynningar og fréttir um fundi og verkefni sem klúbburinn vinnur að
Myndir frá nýársfagnaðinum eru komnar á vefinn. Myndirnar tók Matthías Frímannsson á vél klúbbsins.
Næsta verkefni er nýársfagnaður eldri borgara þann 26. janúar n.k. þangað eiga allir að mæta og sinna því verkefni vel eins og ævinlega
Okkur barst þessi kveðja sem við þökkum kærlega fyrir !
11.1.2012 kl. 13:36
Þakka fyrir skemmtilegan fund
Kæru félagar. Þakka fyrir góðan fund á Rauða Ljóninu í gær. Sérstaklega var ánægulegt að hitta hálfgerðan fóstbróður minn, Gísla B. Lárusson frá Miðhúsum og annan hálfgerðan sveitunga minn, Marvin Hallmundsson að vestan. Vona að klúbbnum ykkar gangi allt í haginn. Börkur, ritari Lkl. Seltjarnarness
Börkur Gunnarsson
Kynnið ykkur allt um nýju myndavél klúbbsins, sjá hér :
http://www.youtube.com/watch?v=LicdTr4Kd_k frábært tæki sem líka getur tekið hreyfimyndir.
Og svo er hér kynning á íslensku, smelltu hér 1

Félagar er minntir á að næsti fundur verður
n.k.
þr
iðjudag 10. janúar á Rauða Ljóninu í boði Lkl Seltjarnarness. Mætið tímalega ca. 18:50 og æskilegt er að sem flestir komi brandara og allir með gott skap.
Nú er búið að setja inn myndir frá desemberfundinum. Myndirnar eru teknar af Matthíasi Frímannssyni.
Lionsklúbbarnir í Kópavogi standa að
Skötuveislu
í Lionssalnum Lundi Auðbrekku 25-27 í Kópavogi
22. desember frá kl. 17 til 21
sjá meira !
Frábær fundur hjá Muninn !
Hinn 2. nóvember sl. var fundur hjá Lkl. Muninn í Kópavogi. Til fundarins var boðið félögum úr Lkl.Kópavogs og Ýr auk Muninsfélaga og einnig félögum úr Round table klúbbum úrReykjavík. Fundurinn var að mestu í höndum dagsskrár-nefndar en það var formaður hennar, Jóhann Ólafsson sem fékk Dr Sigrúnu Hreinsdóttur, jarðeðlisfræðing við Háskóla Íslands til að ræða þetta við okkur og upplýsa okkur um jarðfræði næsta nágrennis og hvort íbúum á stór Kópavogssvæðinu stafi hætta af jarðhræringum sjá meira hér ! Myndir frá fundinum eru komnar í myndasafnið.
Hugleiðingar um jarðfræði í tilefni fyrirlesturs sem verður á næsta fundi klúbbsins:
"Síðasta goshrina á Reykjanesi var á milli 800 -1300, oft kallað"heita miðalda tímabilið" þar sem sólin var í hámarki, solar maximum. Þetta tímabil var hlýtt og geislar sólarinnar mjög öflugir, solar radiation.
Núna erum við sennilega að sigla inn í nýtt sólar hámark, enda sólin verið að taka við sér eftir litlu ísöldina og mun mikið sólgos verða árið 2013 skv. NASA (Geimferðastofnun Bandaríkjanna).
Spurning er því hvort nýtt gostímabil sé að hefjast á Reykjanesi, en einmitt mjög virk sól eykur á landrekið og þar með eykur líkur á að sprungur opnist, enda verða á Reykjanesi nær eingöngu sprungugos.
Hellnahraun í Hafnarfirði er frá um 1300, þar sem iðnaðarhverfið er ogVallahraunið þar sem Vallahverfið frá því um 980.
Þess má geta að fyrir 5000 þúsund árum, var líka mikið hlýtímabil og sólin í miklu hámarki, en þá gaus t.d. í Búrfelli fyrir ofan Hafnarfjörð og hraun rann til Garðabæjar, Hafnarfjarðar og langt út á Álftanes
Til þess að velta vöngum yfir þessu og fræðast hefur Lkl. Muninn fengið Dr Sigrúnu Hreinsdóttur, jarðeðlisfræðing við Háskóla Íslands til að ræða þetta við okkur og upplýsa okkurum jarðfræði næsta nágrennis og hvort okkur stafi hætta af jarðhræringum sem óneitanlega hafa verið talsverðar á Krísuvíkursvæðinu og Reykjanesi undanfarin misseri. Dr Sigrún mun mæta á næsta fund sem verður miðvikudaginn 2. nóvember kl 19.15. Stjórn og dagskrárnefnd hefur ákveðið að bjóða félögum í Lkl. Ýr og Lkl.Kópavogs að koma og hlíða á fyrirlestur Dr Sigrúnar.
3. fundur starfsársins var 5. október s.l. Gestur fundarins var Hjálmar Hjálmarsson forseti bæjarstjórnar sem ræddi við okkur um stjórn bæjarins og reynslu sína í starfi forseta bæjarstjórnar. Myndir frá fundinum eru komnar inn.
Óskum félaga okkar og sk
otta til hamingju með daginn. Marvin gekk til liðs við Muninn í október 1986 og hefur mætt alltaf á fundi síðan og er því virkilega virkur félagi okkar og lítur alls ekki út fyrir að vera búinn að lifa í 80 ár !
Til hamingju með daginn og áfangann !
Fyrsti fundur starfsárins fór að venju fram 1. miðvikudag í
september sem að þessu sinni var 7. dagur mánaðarins. Að venju fóru fram stjórnarskipti, fráfarandi stjórn lagði fram yfirlit um starfið á síðastliðnu starfsári sem var það 45. í starfi klúbbsins. Stofndag klúbbsins, 29. apríl, voru haldni
r tónleikar til styrktar Foreldrahúsi Vímulausrar æsku sem tókust frábærlega eins og hér hefur verið skýrt frá. Reikningar klúbbsins verða lagðir fram síðar en á fundinum var Stefáni H. Stefánssyni falið að færa aðstandendum Foreldrahússins lokauppgjör á tekjum af tónleikum KK kr. 130 þúsund svo að heildarupphæðin sem tónleikarnir gáfu af sér var því rúmar 830 þúsundir. Myndir frá fundinum eru komnar inn.
Ágætu félagar !
Nú er vetrarstarfið að hefjast hjá okkur í Lionsklúbbnum Muninn. 1. fundur á starfsárinu er n.k. miðvikudag 7. sept. 2011 kl. 19.15 í Lionsheimilinu Lundi.
Fráfarandi stjórn mun skila af sér með skýrslu formanns og rétt er að taka það fram, svo menn geti verið vel undir það búnir að ritari mun lesa tvær fundargerðir frá því í maí. Ný stjórn tekur við, en hana skipa Ragnar Kærnested formaður, Hannes Jónsson gjaldkeri og Brynjar E. Eyjólfsson ritari.
Sjáumst eldhressir á miðvikudaginn eftir gott sumarfrí.
Stjórnin.
Góðir félagar, njótið sumarsins vel. Sjáumst í haust (nema þeir sem rekast saman á ferðalögum um landið) !